IMG_1796.JPG
 

TOPP GÆÐI

Við hjá Merkprent stuðlum að því að allar vörur séu í topp gæðum, og að kúnnar séu sáttir með viðskipti sín hjá okkur. Mikil handavinna er lögð í hönnun og vinnslu á vörunni ásamt uppsetningu og framsetningu þegar komið er að skilum. Stundum er varan unnin tvisvar eða þrisvar sinnum til að ná henni eins fallegri og hægt er fyrir skil.

 

PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA

Merkiprent er lítið fyrirtæki, en við erum með stórt hjarta. Hvert einasta verkefni hjá okkur fer í gegnum Einar, stofnanda fyrirtækisins, sem sér til þess að allir kúnnar fá þá persónulegu og fagmannlegu þjónustu sem þeir sækjast til okkar fyrir.

 
IMG_1819.jpg
 

Um Okkur

Merkiprent var stofnað þann 4. Júní, 1993, Fyrsta vélin sem við keyptum var lítil pennaprentvél og fyrst um sinn prentuðum við aðeins á penna, kveikjara og aðra smáhluti en fljótlega fjárfestum við í lit-ljósritunarvél og síðan hefur tækjunum fjölgað smátt og smátt með árunum.

Við rekum handfylli af stórum prenturum, í ýmsum stærðum. Sumir eru sérstaklega hugsaðir fyrir ljósmynda og strigaprentun en sá stærsti er fyrir bíla og límmiðamerkingar, auk þess sem hann prentar á seglborða og útifána.

Þar að auki höfum við tvo stóra skurðarplottera sem geta skorið út stafi og munstur í öllum stærðum og litum, hvort sem þeir eiga að fara á bíla, báta eða skilti. Til dæmis sandblásturfilmur, sem eru mjög vinsælar þessar dagana.

Við bjóðum upp á hverskonar smáprentun t.d. nafnspjöld eða útprentun á ritgerðum eða kynningarbæklingum.
Við kappkostum á að bjóða upp á góða, persónulega og fljótlega þjónustu og vörur af hæsta gæðastuðli, eins og við höfum gert frá árinu 1993.